Fara beint í Meginmál

Lánasjóðir ríkisins í september 2025 28. október 2025

Heildareignir lánasjóða ríkisins námu 631,1 ma.kr. í lok september og lækkuðu um 1,7 ma.kr. á milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 630,9 ma.kr. og erlendar eignir 216,1 m.kr.
Skuldir (án eigin fjár) námu 662,2 ma.kr. og lækkuðu um 2,7 ma.kr. í mánuðinum. Þar af námu innlendar skuldir 662,2 ma.kr. og erlendar skuldir 57,5 m.kr.
Eigið fé lánasjóða ríkisins hækkaði um 912 m.kr. í mánuðinum og var neikvætt um 31,1 ma.kr. í lok september.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lánasjóða ríkisins í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is