Fara beint í Meginmál

Lífeyrissjóðir í ágúst 20256. október 2025

Eignir lífeyrissjóða námu 8.412,1 ma.kr. í ágúst og hækkuðu um 34,1 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.450,7 ma.kr. og séreignadeilda 961,4 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 5.010,3 ma.kr. og hækkuðu um 11,3 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.742,5 ma.kr. og hækkuðu um 19,4 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.035 ma.kr. og lækkuðu um 12 ma.kr. Innlend útlán námu 773,6 ma.kr. og hækkuðu um 11,6 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.401,8 ma.kr. í lok ágúst og hækkuðu um 22,8 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.278,4 ma.kr. og hækkuðu um 24,1 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum hækkuðu um 1,5 ma.kr. og námu 9,3 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.398,4 ma.kr. í lok ágúst.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is