Eignir lífeyrissjóða námu 8.045,4 ma.kr. í apríl og lækkuðu um 49,8 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.132,5 ma.kr. og séreignadeilda 912,9 ma.kr.
Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.888,2 ma.kr. og hækkuðu um 8,8 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.716,9 ma.kr. og hækkuðu um 9,2 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 986,5 ma.kr. og lækkuðu um 21,3 ma.kr. Innlend útlán námu 718,8 ma.kr. og hækkuðu um 9,7 ma.kr.
Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.157,3 ma.kr. í lok apríl og lækkuðu um 58,6 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.063,3 ma.kr. og lækkuðu um 75,9 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 973 m.kr. og námu 8,3 ma.kr.
Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.034,4 ma.kr. í lok apríl.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is