Eignir lífeyrissjóða námu 8.378 ma.kr. í júlí og hækkuðu um 166,3 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.422,9 ma.kr. og séreignadeilda 955,1 ma.kr.
Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.999 ma.kr. og hækkuðu um 52,2 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.723,1 ma.kr. og hækkuðu um 12,9 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.047 ma.kr. og hækkuðu um 30,1 ma.kr. Innlend útlán námu 762 ma.kr. og hækkuðu um 15,3 ma.kr.
Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.379 ma.kr. í lok júlí og hækkuðu um 114 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.254,3 ma.kr. og hækkuðu um 82 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum hækkuðu um 721 m.kr. og námu 7,8 ma.kr.
Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.367,3 ma.kr. í lok júlí.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is