Eignir lífeyrissjóða námu 8.211,7 ma.kr. í júní og lækkuðu um 53,9 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.274,3 ma.kr. og séreignadeilda 937,3 ma.kr.
Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.946,7 ma.kr. og lækkuðu um 29,6 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.710,2 ma.kr. og lækkuðu um 35,2 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.017 ma.kr. og lækkuðu um 22,3 ma.kr. Innlend útlán námu 746,7 ma.kr. og hækkuðu um 12,7 ma.kr.
Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.265 ma.kr. í lok júní og lækkuðu um 24,4 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.172,3 ma.kr. og lækkuðu um 16,4 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 926 m.kr. og námu 7 ma.kr.
Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.199,4 ma.kr. í lok júní.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is