Eignir lífeyrissjóða námu 8.094,7 ma.kr. í mars og lækkuðu um 297,7 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.179 ma.kr. og séreignadeilda 915,7 ma.kr.
Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.879,5 ma.kr. og lækkuðu um 15,9 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.707,5 ma.kr. og hækkuðu um 27,6 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.008,2 ma.kr. og lækkuðu um 55,9 ma.kr. Innlend útlán námu 709,1 ma.kr. og hækkuðu um 13,6 ma.kr.
Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.215,2 ma.kr. í lok mars og lækkuðu um 281,8 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.138,5 ma.kr. og lækkuðu um 259,6 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 1,5 ma.kr. og námu 7,4 ma.kr.
Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.083,3 ma.kr. í lok mars.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is