Fara beint í Meginmál

Lífeyrissjóðir í september 2025 4. nóvember 2025

Eignir lífeyrissjóða námu 8.481,3 ma.kr. í septemeber og hækkuðu um 69,2 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.508,7 ma.kr. og séreignadeilda 972,6 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 5.037,9 ma.kr. og hækkuðu um 27,6 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.730,3 ma.kr. og lækkuðu um 12,2 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.050,5 ma.kr. og hækkuðu um 15,5 ma.kr. Innlend útlán námu 782,2 ma.kr. og hækkuðu um 8,6 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.443,4 ma.kr. í lok septemeber og hækkuðu um 41,6 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.347,6 ma.kr. og hækkuðu um 69,2 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum hækkuðu um 2,2 ma.kr. og námu 11,5 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 8.467 ma.kr. í lok september.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lífeyrissjóða Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is