Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok ágúst námu 291,6 ma.kr. og hækkuðu um 9,3 ma.kr. á milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 261,9 ma.kr. og erlendar eignir 29,8 ma.kr. Innlendar eignir hækkuðu um 932 m.kr. á milli mánaða og erlendar eignir hækkuðu um 8,3 ma.kr.
Skuldir (án eigin) fjár annarra fjármálafyrirtækja námu 249,2 ma.kr. og hækkuðu um 9 ma.kr. í ágúst. Þar af námu innlendar skuldir 232,7 ma.kr. og erlendar skuldir 16,5 ma.kr. Eigið fé nam 42,5 ma.kr. í lok ágúst og hækkaði um 278 m.kr frá fyrri mánuði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi annarra fjármálafyrirtækja í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is