Fara beint í Meginmál

Önnur fjármálafyrirtæki í maí 2025

Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok maí námu 281,8 ma.kr. og hækkuðu um 8,2 ma.kr. á milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 253,4 ma.kr. og erlendar eignir 28,4 ma.kr. Innlendar eignir lækkuðu um 2,2 m.kr. á milli mánaða og erlendar eignir hækkuðu um 6 m.kr.

Skuldir annarra fjármálafyrirtækja án eigin fjár námu 240,6 ma.kr. og hækkuðu um 7,7 ma.kr. maí. Þar af námu innlendar skuldir 224,9 ma.kr. og erlendar skuldir 15,6 ma.kr. Eigið fé nam 41,2 ma.kr. í lok maí og hækkaði um 493 m.kr frá fyrri mánuði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi annarra fjármálafyrirtækja í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is