Meginmál

Önnur fjármálafyrirtæki í mars 2025

Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok mars námu 276,2 ma.kr. og hækkuðu um 2,5 ma.kr. milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 255,3 ma.kr. og erlendar eignir 20,9 ma.kr. Innlendar eignir hækkuðu um 4,1 m.kr. á milli mánaða og erlendar eignir lækkuðu um 1,6 m.kr.

Skuldir annarra fjármálafyrirtækja námu 235,3 ma.kr. og hækkuðu um 874 m.kr. í mars. Þar af námu innlendar skuldir (án eigin fjár) 226,1 ma.kr. og erlendar skuldir 9,2 ma.kr. Eigið fé nam 40,9 ma.kr. í lok mars og hækkaði um 1,6 m.kr frá fyrri mánuði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi annarra fjármálafyrirtækja í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is