Fara beint í Meginmál

Önnur fjármálafyrirtæki í september 2025 28. október 2025

Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok september námu 286 ma.kr. og lækkuðu um 5,0 ma.kr. á milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 263,9 ma.kr. og erlendar eignir 22,1 ma.kr. Innlendar eignir hækkuðu um 2,6 ma.kr. á milli mánaða og erlendar eignir lækkuðu um 7,6 ma.kr.

Skuldir (án eigin) fjár annarra fjármálafyrirtækja námu 244 ma.kr. og lækkuðu um 5,2 ma.kr. í september. Þar af námu innlendar skuldir 232,6 ma.kr. og erlendar skuldir 11,4 ma.kr. Eigið fé nam 42 ma.kr. í lok september og hækkaði um 169 m.kr frá fyrri mánuði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi annarra fjármálafyrirtækja í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is