Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 101,1 stig í ágúst sl., lækkaði um 0,9% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 9,2% hærri í ágúst sl. samanborið við sama mánuð árið 2024.
Á öðrum ársfjórðungi ársins 2025 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 99,5 stig (2005=100) sem er 3,5% hækkun miðað við fyrsta ársfjórðung árið 2025.
Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 114,4 stig (2005=100) á öðrum ársfjórðungi 2025, hækkaði um 11,2% miðað við fyrsta ársfjórðung 2025.
Sjá nánari sundurliðun á raungengi í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is