Meginmál

Raungengi í apríl 2025

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 98,6 stig í apríl sl., hækkaði um 2,4% miðað við mánuðinn þar á undan.  Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 7,2% hærri í apríl sl. samanborið við sama mánuð árið 2024.

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2025 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 96,4 stig (2005=100) sem er 1,0% hækkun miðað við fjórða ársfjórðung árið 2024.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 94,1 stig (2005=100) á fjórða ársfjórðungi 2024, lækkaði um 2,1% miðað við þriðja ársfjórðung 2024 - (vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar á fyrsta ársfjórðungi 2025, verður birt í byrjun júní n.k. þegar gögn þar að lútandi verða tiltæk).

Sjá nánari sundurliðun á raungengi  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is