Fara beint í Meginmál

Raungengi í júlí 2025

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 102 stig í júlí sl., hækkaði um 1,5% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 8,7% hærri í júlí sl. samanborið við sama mánuð árið 2024.

Á öðrum ársfjórðungi ársins 2025 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 99,5 stig (2005=100) sem er 3,5% hækkun miðað við fyrsta ársfjórðung árið 2025.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 100,3 stig (2005=100) á fyrsta ársfjórðungi 2025, hækkaði um 3,8% miðað við fjórða ársfjórðung 2024.

Sjá nánari sundurliðun á raungengi  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is