Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 100,7 stig í júní sl., hækkaði um 2,9% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 8,2% hærri í júní sl. samanborið við sama mánuð árið 2024.
Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2025 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 96,1 stig (2005=100) sem er 0,7% hækkun miðað við fjórða ársfjórðung árið 2024.
Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 100,8 stig (2005=100) á fyrsta ársfjórðungi 2025, hækkaði um 3,9% miðað við fjórða ársfjórðung 2024.
Sjá nánari sundurliðun á raungengi í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is