Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 96,3 stig í mars sl., hækkaði um 1,0% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 3,8% hærri í mars sl. samanborið við sama mánuð árið 2024.
Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2025 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 96,4 stig (2005=100) sem er 1,0% hækkun miðað við fjórða ársfjórðung árið 2024.
Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 94,1 stig (2005=100) á fjórða ársfjórðungi 2024, lækkaði um 2,1% miðað við þriðja ársfjórðung 2024 - (vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar á fyrsta ársfjórðungi 2025 verður birt í byrjun júní n.k. þegar gögn þar að lútandi verða tiltæk).
Sjá nánari sundurliðun á raungengi í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is