Fara beint í Meginmál

Raungengi í október 2025 7. nóvember 2025

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 102,1 stig í október sl., hækkaði um 0,7% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 9,0% hærri í október sl. samanborið við sama mánuð árið 2024.

Á þriðja ársfjórðungi ársins 2025 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 102,2 stig (2005=100) sem er 2,7% hækkun miðað við öðrum ársfjórðung árið 2025.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 115,2 stig (2005=100) á öðrum ársfjórðungi 2025, hækkaði um 11,8% miðað við fyrsta ársfjórðung 2025.

Sjá nánari sundurliðun á raungengi  í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is