Seðlabanki Íslands hefur yfirfarið og uppfært skilaáætlanir fyrir viðskiptabanka 17. október 2025
Skilavald Seðlabanka Íslands hefur yfirfarið skilaáætlanir fyrir viðskiptabankana fjóra – Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka og Landsbankann. Áætlanirnar voru uppfærðar eftir því sem tilefni var til. Áætlanirnar ná til framkvæmdar skilameðferðar bankanna ef til þess kæmi að fjárhagsstaða þeirra yrði svo slæm að þeir teldust vera á fallanda fæti.
Komi til falls lánastofnana felur skilaáætlun í sér að mögulegt verði að endurreisa þær hratt og örugglega, án opinbers fjárstuðnings frá ríkissjóði eða Seðlabankanum, eða að þær fari í slitameðferð. Skilameðferð á að tryggja að almenningur og fyrirtæki hafi áfram óheftan aðgang að nauðsynlegri starfsemi (e. critical function) og styðja með því við fjármálastöðugleika í landinu.
Við uppfærslu skilaáætlana tók skilavaldið ákvarðanir um lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar bankanna (MREL), í samræmi við lög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020. MREL-kröfurnar eru byggðar á lögum um skilameðferð og MREL-stefnu Seðlabankans, en þeim er ætlað að styðja við skilaáætlanirnar og tryggja að hægt verði að endurreisa banka sem er á fallanda fæti. Lánastofnunum ber ávallt að uppfylla MREL-kröfur sem gerðar eru til þeirra.
Skilaáætlanir lánastofnana eru unnar í samræmi við lög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, auk reglugerða og reglna sem settar eru á grundvelli laganna. Hver skilaáætlun byggir á mati á skilabærni viðkomandi lánastofnunar en í matinu felst greining á starfsemi viðkomandi lánastofnunar og rökstuðningur fyrir þeirri leið sem fara ber, ef hún fellur, með hliðsjón af markmiðum laga um skilameðferð. Á meðal helstu markmiða eru að tryggja að fall banka hafi sem minnst áhrif á viðskiptavini hans, að lágmarka hættu á að veita þurfi fjárframlög úr ríkissjóði auk þess að lágmarka neikvæðar afleiðingar fjármálaáfalls.
Nánari upplýsingar um starfsemi skilavaldsins og skilameðferð lánastofnana má finna á vef Seðlabankans.