Staða markaðsskuldabréfa nam 3.614,5 ma.kr. í lok apríl 2025 og lækkaði um 7,4 ma. kr. í mánuðinum. Staða ríkisbréfa hækkaði um 16,4 ma.kr. og ríkisvíxlar lækkuðu um 7,7 ma.kr. Hlutdeildarskírteini sjóða námu 1.158,8 ma.kr. og markaðsvirði skráðra hlutabréfa á aðallista Kauphallar Íslands nam 2.850,3 ma.kr í lok apríl 2025.
Sjá nánari sundurliðun á stöðu markaðsverðbréfa í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is