Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 5/2025 dagsettri 22. maí sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir.
Dráttarvextir eru því einnig óbreyttir og verða áfram 15,25% fyrir tímabilið 1.-31. júlí 2025.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1.-31. júlí 2025:
• Vextir óverðtryggðra útlána 8,00% (lækka úr 8,45%)
• Vextir verðtryggðra útlána 4,00% (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 5,33% (lækka úr 5,63%)