Heildareignir vátryggingafélaga námu 341,3 ma.kr. í lok febrúar. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 320,1 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 21,3 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 280,2 ma.kr. og erlendar eignir námu 61,2 ma.kr.
Innlendar skuldir félaganna námu 159,1 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 137,8 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 318 m.kr.
Í lok febrúar nam eigið fé tryggingafélaga 181,9 ma.kr. og lækkaði um 3,1 ma.kr. á milli mánaða.
Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is