Heildareignir vátryggingafélaga námu 336,9 ma.kr. í lok júlí. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 317,6 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 19,3 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 276,8 ma.kr. og erlendar eignir námu 60,1 ma.kr.
Innlendar skuldir félaganna námu 155,3 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 136,5 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 416 m.kr.
Í lok júlí nam eigið fé tryggingafélaga 181,1 ma.kr. og hækkaði um 3,3 ma.kr. á milli mánaða.
Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is