Heildareignir vátryggingafélaga námu 336,0 ma.kr. í lok júní. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 316,9 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 19,1 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 276,9 ma.kr. og erlendar eignir námu 59,1 ma.kr.
Innlendar skuldir félaganna námu 157,7 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 137,5 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 441 m.kr.
Í lok júní nam eigið fé tryggingafélaga 177,9 ma.kr. og hækkaði um 718 m.kr. á milli mánaða.
Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is