Fara beint í Meginmál

Tryggingafélög í maí 2025

Heildareignir vátryggingafélaga námu 334,1 ma.kr. í lok maí. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 315,2 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 18,9 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 274,8 ma.kr. og erlendar eignir námu 59,3 ma.kr.

Innlendar skuldir félaganna námu 156,5 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 139,1 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 411 m.kr.

Í lok maí nam eigið fé tryggingafélaga 177,2 ma.kr. og hækkaði um 3,1 ma.kr. á milli mánaða.

Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is