Meginmál

Tryggingafélög í mars 2025

Heildareignir vátryggingafélaga námu 330,7 ma.kr. í lok mars. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 312,9 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 17,8 ma.kr. 
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 272,2 ma.kr. og erlendar eignir námu 58,5 ma.kr.

Innlendar skuldir félaganna námu 157,5 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 136,1 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 358 m.kr.

Í lok mars nam eigið fé tryggingafélaga 172,9 ma.kr. og lækkaði um 9,1 ma.kr. á milli mánaða.

Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is