Meginmál

Útboð verðbréfa í apríl 2025

Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í apríl sl. nam 79,2ma.kr. á söluverði, samanborið við 60,4 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.

Í apríl námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 29,1 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 12,4 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 37,7 ma.kr.

Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is