Meginmál

Útboð verðbréfa í desember 2024

Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í desember sl. nam 66,7 ma.kr. á söluverði, samanborið við 92,3 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.

Í desember námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 14,5 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 15,8 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 36,4 ma.kr.

Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is