Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í febrúar sl. nam 73,9 ma.kr. á söluverði, samanborið við 122,6 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.
Í febrúar námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 28,6 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 25,6 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 19,7 ma.kr.
Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is