Meginmál

Útboð verðbréfa í janúar 2025

Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í janúar sl. nam 122,6 ma.kr. á söluverði, samanborið við 66,7 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.

Í janúar námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 25,1 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 45,0 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 52,6 ma.kr.

Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is