Fara beint í Meginmál

Útboð verðbréfa í júlí 2025

Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í júlí sl. nam 47,8 
ma.kr. á söluverði, samanborið við 67,8 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.

Í júlí námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 8,0 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 19,5 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 20,3 ma.kr.

Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is