Fara beint í Meginmál

Útboð verðbréfa í júní 2025

Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í júní sl. nam 62,6 
ma.kr. á söluverði, samanborið við 68,8 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.

Í júní námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 24,9 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 15,0 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 22,7 ma.kr.

Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is