Meginmál

Útboð verðbréfa í mars 2025

Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í mars sl. nam 60,4 ma.kr. á söluverði, samanborið við 73,9 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.

Í mars námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 15,4 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 11,6 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 33,4 ma.kr.

Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is