Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.397,8 ma.kr. í ágúst og lækkuðu um 0,9 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 165,5 ma.kr. og hækkuðu um 2,2 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 559,7 ma.kr. og lækkuðu um 0,8 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 669,4 ma.kr. og lækkuðu um 2,4 ma.kr.
Fjöldi sjóða í lok ágúst var 252 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 80 fjárfestingarsjóði og 134 fagfjárfestasjóði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is