Meginmál

Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir í apríl 2025

Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.367,1 ma.kr. í apríl og lækkuðu um 0,2 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 163,3 ma.kr. og lækkuðu um 0,5 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 555,7 ma.kr. og lækkuðu um 2,6 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 648,0 ma.kr. og hækkuðu um 2,8 ma.kr.

Fjöldi sjóða í lok apríl var 246 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 80 fjárfestingarsjóði og 128 fagfjárfestasjóði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is