Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.385,8 ma.kr. í júní og hækkuðu um 8,4 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 163,4 ma.kr. og lækkuðu um 0,7 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 559,5 ma.kr. og lækkuðu um 0,9 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 662,9 ma.kr. og hækkuðu um 10,0 ma.kr.
Fjöldi sjóða í lok júní var 249 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 80 fjárfestingarsjóði og 131 fagfjárfestasjóði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is