Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.367,3 ma.kr. í mars og hækkuðu um 11,1 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 163,8 ma.kr. og lækkuðu um 2,0 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 558,3 ma.kr. og lækkuðu um 13,6 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 645,2 ma.kr. og hækkuðu um 26,8 ma.kr.
Fjöldi sjóða í lok mars var 246 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 80 fjárfestingarsjóði og 128 fagfjárfestasjóði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is