Fara beint í Meginmál

Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir í september 2025 27. október 2025

Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.409,8 ma.kr. í september og hækkuðu um 12,0 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 165,6 ma.kr. og hækkuðu um 0,1 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 567,3 ma.kr. og hækkuðu um 7,6 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 673,8 ma.kr. og hækkuðu um 4,4 ma.kr.

Fjöldi sjóða í lok september var 254 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 79 fjárfestingarsjóði og 137 fagfjárfestasjóði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is