Gögn fyrir gjaldeyrisviðskipti skilaaðila í stundarviðskiptum eru birt mánaðarlega eftir fyrirfram ákveðinni birtingaráætlun kl. 09:00 á birtingardegi.
Gögnin eru aðgengileg á mánaðarlegri tíðni frá janúar 2026.
Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is
Ítarleg gögn fyrir gjaldeyrisviðskipti má nálgast á tímaraðaformi í Gagnabankanum
Fjárhæðir eru í milljónum króna (m.kr.)
Gögnum um gjaldeyrisviðskipti er safnað í því skyni að fylgjast með veltu á gjaldeyrismarkaði.
Lagagrundvöllur
Gagnasöfnunin er á grundvelli reglna nr. 861/2022 um almenna tilkynningarskyldu skv. lögum um gjaldeyrismál, sem settar eru á grundvelli 8. mgr. 10. gr. laga nr. 70/2021 um gjaldeyrismál.
Gjaldeyrisviðskipti
Hugtakið gjaldeyrisviðskipti vísar hér til allra gjaldeyrisviðskipta viðskiptabankanna í stundarviðskiptum þar sem íslenskri krónu er skipt fyrir erlendan gjaldmiðil.
Endurskoðun gagna
Gögn eru endurskoðuð komi fram leiðréttingar frá skilaaðilum.
Stundargjaldeyrisviðskipti
Stundargjaldeyrisviðskipti eru skilgreind sem viðskipti með tvo gjaldmiðla þar sem gengi er ákvarðað á viðskiptadegi og uppgjör fer fram eftir tvo eða færri daga.
Önnur innlend fjármálafyrirtæki
Viðskipti allra innlendra fjármálafyrirtækja annarra en viðskiptavaka á millibankamarkaði, lífeyrissjóða og Seðlabanka Íslands. Viðskipti á milli Kviku banka og hinna viðskiptabankanna eru í þessum flokki þar sem Kvika er ekki viðskiptavaki samkvæmt reglum nr 600/2020.
Viðskiptavaki á millibankamarkaði með gjaldeyri
Viðskiptavakar á gjaldeyrismarkaði samkvæmt reglum nr. 600/2020 eru þrír; Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn.
Innlendur aðili / Erlendur aðili
Innlendur aðili merkir sérhvern einstakling sem hefur lögheimili á Íslandi og lögaðila sem skráður er til heimilis á Íslandi, án tillits til ríkisfangs. Undanþegnir búsetuskilyrðum eru námsmenn og starfsmenn sendiráða. Þannig teljast íslenskir námsmenn og skyldulið þeirra sem búa erlendis vera innlendir aðilar og erlendir sendiráðsstarfsmenn teljast til erlendra aðila. Erlendur aðili merkir alla aðra aðila en innlenda.
| Titill | Tíðni | Nýjast | Tímabil | Næst | Flokkur | Gagnabanki |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Efnahagur Seðlabanka Íslands | Mánaðarleg | 7. september | Ágúst 2026 | 7. október | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Raungengi | Mánaðarleg | 7. september | Ágúst 2026 | 7. október | Markaðir | |
| Fjármálareikningar fjármálafyrirtækja | Ársfjórðungsleg | 7. september | 2. ársfjórðungur 2026 | 7. desember | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Lífeyrissjóðir | Mánaðarleg | 4. september | Júlí 2026 | 7. október | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Gjaldeyrismarkaður | Mánaðarleg | 3. september | Ágúst 2026 | 5. október | Markaðir | |
| Krónumarkaður | Mánaðarleg | 3. september | Ágúst 2026 | 5. október | Markaðir | |
| Greiðslujöfnuður við útlönd | Ársfjórðungsleg | 3. september | 2. ársfj. 2026 | 3. desember | Greiðslujöfnuður við útlönd | |
| Erlendar skuldir | Ársfjórðungsleg | 3. september | 2. ársfj. 2026 | 3. desember | Greiðslujöfnuður við útlönd | |
| Erlend staða þjóðarbúsins | Ársfjórðungsleg | 3. september | 2. ársfj. 2026 | 3. desember | Greiðslujöfnuður við útlönd | |
| Gjaldeyrisviðskipti | Mánaðarleg | 1. september | Júlí 2026 | 15. september | Markaðir | |
| Verðbréfafjárfesting | Mánaðarleg | 31. ágúst | Júlí 2026 | 29. september | Greiðslujöfnuður við útlönd | |
| Staða markaðsverðbréfa | Mánaðarleg | 31. ágúst | Júlí 2026 | 30. september | Markaðir | |
| Önnur fjármálafyrirtæki | Mánaðarleg | 27. ágúst | Júlí 2026 | 28. september | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir | Mánaðarleg | 27. ágúst | Júlí 2026 | 28. september | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Lánasjóðir ríkisins | Mánaðarleg | 27. ágúst | Júlí 2026 | 28. september | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Innlánsstofnanir | Mánaðarleg | 25. ágúst | Júlí 2026 | 24. september | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Greiðslumiðlun | Mánaðarleg | 18. ágúst | Júlí 2026 | 17. september | Markaðir | |
| Tryggingafélög | Mánaðarleg | 17. ágúst | Júní 2026 | 17. september | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Útboð verðbréfa | Mánaðarleg | 17. ágúst | Júlí 2026 | 17. september | Markaðir | |
| Gjaldeyrisforði | Mánaðarleg | 12. ágúst | Júlí 2026 | 9. september | Greiðslujöfnuður við útlönd | |
| Bein fjárfesting | Árleg | 20. mars | 2024 uppfærsla | 21. september | Greiðslujöfnuður við útlönd |