Fara beint í Meginmál

Gögn um veltu greiðslukorta og fjölda færslna innlendra korta innanlands sem erlendis og erlendra korta hér á landi eru birt mánaðarlega eftir fyrirfram ákveðinni birtingaráætlun kl. 09:00 á birtingardegi.

Gögnin eru aðgengileg á mánaðarlegri tíðni frá janúar 1998. Frá ársbyrjun 2013 er miðað við almanaksmánuð en áður við innheimtutímabil.

Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is

Hér má nálgast tímaraðaskjal fyrir greiðslumiðlun

Greiðslumiðlun

Gögnum um greiðslumiðlun er safnað í því skyni að fylgjast með veltu greiðslukorta og fjölda færslna og birta samantekt á upplýsingum frá þeim. Seðlabankinn nýtir gögnin jafnframt í starfsemi sinni.

Lagagrundvöllur

Gagnasöfnunin fer fram á grundvelli 32. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Í samræmi við 41. gr. laganna hefur Seðlabankinn heimild að eiga upplýsingaskipti við opinbera aðila um atriði sem lög þessi taka til þegar upplýsingaskiptin eru í samræmi við lögmælt hlutverk Seðlabankans eða móttakanda.

Greiðslumiðlun

Fyrirtæki í greiðslumiðlun auðvelda greiðslur frá korthöfum til söluaðila með greiðslumiðlunartækni, þ.m.t. kort og posar. Gögn um greiðslumiðlun endurspegla veltu og færslufjölda innlendra korta innanlands, auk veltu og færslufjölda erlendra korta innanlands.

Greiðslumiðlunarmarkaði má í grófum dráttum skipta í tvennt:

  • Kortaútgefendur: Gefa út kort til einstaklinga og fyrirtækja til að framkvæma greiðslur fyrir vörur og þjónustu. Auk þess er að hægt að taka út reiðufé með kortafærslum.  Athugið að hér er um að ræða innlendar fjármálastofnanir en ekki alþjóðleg kortakerfi á borð við Mastercard eða VISA.
  • Færsluhirðar: Útvega söluaðilum posa og annars háttar tæknilausnir til að taka á móti og vinna úr greiðslum frá korthöfum.

Auk þess má nefna að notkun á annars háttar greiðslumiðlunartækni hefur færst í aukana, t.a.m. er hægt að greiða fyrir vörur og þjónustu með beinum millifærslum. Eins má nefna reikning-í-reikning greiðslur og kortalausa færsluhirðingu á borð við PayPal.  Notkun reiðufés tíðkast enn. Gagnasöfnun Seðlabankans leitast við að ná utan um umfang ólíkra greiðsluleiða.

Endurskoðun gagna

Nýjustu tölur eru ávallt bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum berist ný gögn frá skilaaðilum.

Greiðslumiðlun

Fyrirtæki í greiðslumiðlun auðvelda greiðslur frá korthöfum til söluaðila með greiðslumiðlunartækni, þ.m.t. kort og posar. Gögn um greiðslumiðlun endurspegla veltu og færslufjölda innlendra korta innanlands, auk veltu og færslufjölda erlendra korta innanlands.

Kortaútgefendur
Gefa út kort til einstaklinga og fyrirtækja til að framkvæma greiðslur fyrir vörur og þjónustu. Auk þess er að hægt að taka út reiðufé með kortafærslum. Athugið að hér er um að ræða innlendar fjármálastofnanir en ekki alþjóðleg kortakerfi á borð við Mastercard eða VISA.

Færsluhirðar
Útvega söluaðilum posa og annars háttar tæknilausnir til að taka á móti og vinna úr greiðslum frá korthöfum.

Debetkort
Rafrænt kort sem millifærir beint á bankareikning eiganda kortsins

Kreditkort
Rafrænt kort þar sem greiðslum er safnað saman hjá færsluhirðum til innheimtu mánaðarlega frá eiganda kortsins.

Virk greiðslukort
Kort sem notuð hafa verið í viðkomandi mánuði.

Útgefin greiðslukort
Öll útgefin, gildandi kort, óháð því hvort þau hafa verið notuð.

Innlendur aðili / Erlendur aðili

Innlendur aðili merkir sérhvern einstakling sem hefur lögheimili á Íslandi og lögaðila sem skráður er til heimilis á Íslandi, án tillits til ríkisfangs. Undanþegnir búsetuskilyrðum eru námsmenn og starfsmenn sendiráða. Þannig teljast íslenskir námsmenn og skyldulið þeirra sem búa erlendis vera innlendir aðilar og erlendir sendiráðsstarfsmenn teljast til erlendra aðila. Erlendur aðili merkir alla aðra aðila en innlenda.

greiðslumiðlun
17. nóvember
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Október 2026
greiðslumiðlun
17. desember
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Nóvember 2026
greiðslumiðlun
15. janúar
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Desember 2026
Hagtölur
TitillTíðniNýjastTímabilNæstFlokkurGagnabanki
Önnur fjármálafyrirtækiMánaðarleg27. októberSeptember 202627. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðirMánaðarleg27. októberSeptember 202627. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Lánasjóðir ríkisinsMánaðarleg27. októberSeptember 202627. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
InnlánsstofnanirMánaðarleg23. októberSeptember 202625. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
TryggingafélögMánaðarleg19. októberÁgúst 202617. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Útboð verðbréfaMánaðarleg19. októberSeptember 202617. nóvemberMarkaðir
GreiðslumiðlunMánaðarleg16. októberSeptember 202617. nóvemberMarkaðir
GjaldeyrisviðskiptiMánaðarleg15. októberSeptember 202616. nóvemberMarkaðir
GjaldeyrisforðiMánaðarleg9. októberSeptember 202610. nóvemberGreiðslujöfnuður við útlönd
LífeyrissjóðirMánaðarleg7. októberÁgúst 20265. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Efnahagur Seðlabanka ÍslandsMánaðarleg7. októberSeptember 20266. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
RaungengiMánaðarleg7. októberSeptember 20266. nóvemberMarkaðir
GjaldeyrismarkaðurMánaðarleg5. októberSeptember 20264. nóvemberMarkaðir
KrónumarkaðurMánaðarleg5. októberSeptember 20264. nóvemberMarkaðir
Staða markaðsverðbréfaMánaðarleg30. septemberÁgúst 202630. októberMarkaðir
VerðbréfafjárfestingMánaðarleg29. septemberÁgúst 202629. októberGreiðslujöfnuður við útlönd
Bein fjárfestingÁrleg21. september202511. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
Fjármálareikningar fjármálafyrirtækjaÁrsfjórðungsleg7. september2. ársfjórðungur 20267. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Erlendar skuldirÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Greiðslujöfnuður við útlöndÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlend staða þjóðarbúsinsÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd