Fara beint í Meginmál

Núverandi nefndarmeðlimir

Ásgeir Jónsson

Formaður fjármálastöðugleikanefndar frá  upphafi árs 2020, en það er hluti af starfi seðlabankastjóra.

Ásgeir útskrifaðist með BS-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 1997, MS-gráðu frá Indiana University árið 1997 og lauk doktorsprófi frá Indiana University árið 2001.

Ágeir starfaði um skeið sem hagfræðingur hjá verkalýðsfélaginu Dagsbrún og hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Árið 2004 var hann ráðinn lektor við Hagfræðideild Háskóla Íslands og síðan dósent. Árið 2015 varð hann deildarforseti Hagfræðideildar Háskóla Íslands. Samhliða störfum sínum við Háskólann starfaði Ásgeir sem efnahagsráðgjafi hjá Virðingu og Gamma ásamt því að vera aðalhagfræðingur Kaupþings og síðan Arion banka á árunum 2004-2011.

Ásgeir var formaður starfshóps um endurskoðun peningastefnu og höfundur skýrslu sem fjallaði um tillögur um umbætur á fjármálamarkaði.

Ásgeir Jónsson

Tómas Brynjólfsson

Staðgengill formanns fjármálastöðugleikanefndar frá ágúst 2024 er hann var skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.

Tómas lauk meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics árið 2004 og meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2003. Þá lauk hann BA-gráðu í alþjóðastjórnmálafræði, sögu og hagfræði við University of Georgia árið 2002.

Tómas var skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá árinu 2018 og var settur ráðuneytisstjóri frá janúar til apríl 2024. Á árunum 2015-2018 var hann framkvæmdastjóri á skrifstofu þjónustuviðskipta hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel og frá 2013-2015 skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála og fjármálamarkaða í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Tómas var varaformaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins á árinu 2015 og stjórnarformaður hjá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda á árunum 2021-2023.

Tómas Brynjólfsson

Arnaldur Sölvi Kristjánsson

Skipaður í fjármálastöðugleikanefnd í mars 2025.

Arnaldur Sölvi er lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands. Hann er með meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og frá Toulouse School of Economics og doktorsgráðu í hagfræði frá háskólanum í Osló. Hann starfaði áður m.a. hjá Alþýðusambandi Íslands, norsku hagstofunni og á efnahagsskrifstofu í fjármálaráðuneyti Noregs í deild sem fylgdist m.a. með fjármálastöðugleika.

Arnaldur Sölvi Kristjánsson

Axel Hall

Skipaður í fjármálastöðugleikanefnd í mars 2020.

Axel Hall er lektor við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Axel er með doktorspróf frá Háskóla Íslands 2015. Hann lauk B.Sc.-gráðu í hagfræði við Háskóla Íslands árið 1994. Hann lauk meistaragráðu í stærðfræðilegri hagfræði og hagrannsóknum við London School of Economics árið 1995. Hann var sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands á árunum 1996-2006 og var stundakennari við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands á sama tíma. Árið 2006 hóf Axel störf við Háskólann í Reykjavík.

Axel Hall

Björk Sigurgísladóttir

Tók sæti í fjármálastöðugleikanefnd frá maí 2023, er hún var skipuð varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.

Björk er með meistaragráðu í alþjóðalögum og samanburðarlögfræði (LLM) frá University of Iowa frá árinu 2004 og meistaragráðu í viðskiptafræði (MBA) frá University of Northern Iowa frá árinu 2008.  Hún lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 2000.

Björk hafði áður starfað í 15 ár við fjármálaeftirlit, fyrst hjá Fjármálaeftirlitinu en síðan hjá Seðlabanka Íslands. Hún tók við starfi forstöðumanns lagalegs eftirlits á eftirlitssviði Fjármálaeftirlitsins árið 2012. Árið 2018 tók hún við starfi framkvæmdastjóra lagalegs eftirlits og vettvangsathugana hjá Fjármálaeftirlitinu en fluttist til Seðlabankans við sameiningu bankans og Fjármálaeftirlitsins árið 2020, þar sem hún gegndi starfi framkvæmdastjóra háttsemiseftirlits.

Björk Sigurgísladóttir

Bryndís Ásbjarnardóttir

Skipuð í fjármálastöðugleikanefnd í mars 2020.

Bryndís er aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskólans á Bifröst og fagstjóri yfir grunnnámi viðskiptafræðideildar. Hún lauk meistaragráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands árið 2007 og BS-gráðu í hagfræði frá sama háskóla árið 2005.

Bryndís hóf störf í Seðlabanka Íslands árið 2005 og starfaði þar í um áratug, en tók við starfi forstöðumanns þjóðhagsvarúðar hjá Fjármálaeftirlitinu árið 2015. Áður starfaði hún um skeið sem hagfræðingur hjá Rannsóknarnefnd Alþingis um Íbúðalánasjóð og hjá Landssamtökum lífeyrissjóða. Á árunum 2020-2022 var Bryndís fagstjóri í spádeild Hagstofunnar og frá 2022-2024 var hún forstöðumaður grunnnáms í viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík.

Bryndís Ásbjarnardóttir

Þórarinn G. Pétursson

Tók sæti í fjármálastöðugleikanefnd í janúar 2025 er hann var skipaður varaseðlabankastjóri peningastefnu.

Þórarinn er með Cand. Oecon-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands, meistarapróf í hagfræði frá háskólanum í Essex í Bretlandi og doktorspróf í hagfræði frá háskólanum í Árósum í Danmörku.

Þórarinn hóf störf í Seðlabanka Íslands árið 1994. Hann var aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs frá árinu 2009 og sat í peningastefnunefnd bankans á árunum 2009-2019. Áður starfaði hann m.a. sem forstöðumaður rannsóknar- og spádeildar hagfræðisviðs og sem deildarstjóri hagrannsókna.

Þórarinn G. Pétursson

Meðlimir fjármálastöðugleikanefndar frá upphafi

Nefndarmeðlimir FSN frá upphafi
nafntímabilum

Ásgeir Jónsson

2020‑

Formaður fjármálastöðugleikanefndar frá  upphafi árs 2020. Lauk doktorsprófi frá Indiana University árið 2001. Lektor við Hagfræðideild Háskóla Íslands frá 2004 og síðan dósent. Deildarforseti Hagfræðideildar Háskóla Íslands 2015. Aðalhagfræðingur Kaupþings og síðan Arion banka á árunum 2004-2011.

Gunnar Jakobsson

2020‑2024

Gunnar Jakobsson lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1995 og MBA námi frá Yale háskóla árið 2001. . Gegndi m.a. ýmsum störfum og yfirmannsstöðum hjá fjárfestingarbankanum Goldman Sachs & Co frá 2002-2020. Skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika frá mars 2020.

Unnur Gunnarsdóttir

2020‑2023

Formaður fjármálaeftirlitsnefndar 2020-2022. Skipuð varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits frá ársbyrjun 2020. Lögfræðingur frá Háskóla Íslands með framhaldsnám bæði í Bretlandi og Kanada. Var áður yfirlögfræðingur Fjármálaeftirlitsins. Forstjóri Fjármálaeftirlitsins frá árinu 2012 til 2020. Starfaði í bankaeftirlit Seðlabanka Íslands í fimm ár og sem sérfræðingur í fjármálaþjónustu hjá EFTA í Brussel. Framkvæmdastjóri Fjölgreiðslumiðlunar í tvö ár. Skrifstofustjóri í sveitarstjórnaráðuneytinu í sjö ár og settur héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Rannveig Sigurðardóttir

2020‑2024

Skipuð aðstoðarseðlabankastjóri árið 2018 og tók þar með sæti í nefndinni. Skipuð varaseðlabankastjóri peningastefnu frá ársbyrjun 2020. Lauk meistaraprófi í hagfræði frá Gautaborgarháskóla í Svíþjóð. Rannveig var áður hagfræðingur hjá BSRB og ASÍ og starfaði í Seðlabankanum frá 2002.

Bryndís Ásbjarnardóttir

2020‑

Bryndís er aðjúnkt við Háskólann á Bifröst. Hún er með MS-próf í fjármálahagfræði. Hefur starfað sem hagfræðingur m.a. hjá Hagstofu Íslands, Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu. Var forstöðumaður grunnnáms í Háskólanum í Reykjavík.

Guðmundur Kr. Tómasson

2020‑2025

Skipaður í nefndina 2020. Var áður framkvæmdastjóri greiðslukerfa og fjármálainnviða í Seðlabankanum. Guðmundur starfaði á árunum 1998-2005 hjá Íslandsbanka sem aðstoðarmaður bankastjóra, framkvæmdastjóri þróunarsviðs, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og lánastýringar. Þá var Guðmundur svæðisstjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Norræna fjárfestingarbankanum í Helsinki á árunum 1990-1998.

Axel Hall

2020‑

Lektor við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Lauk B.Sc.-gráðu í hagfræði við Háskóla Íslands árið 1994, meistaragráðu í stærðfræðilegri hagfræði og hagrannsóknum við London School of Economics árið 1995 og doktorsprófi í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2015. Starfaði hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands á árunum 1996-2006 og var stundakennari við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands á sama tíma. Hóf störf við Háskólann í Reykjavík árið 2006.

Björk Sigurgísladóttir

2023‑

Skipuð varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits 2023. Meistaragráða í alþjóðalögum og samanburðarlögfræði (LLM) frá University of Iowa frá árinu 2004 og meistaragráða í viðskiptafræði (MBA) frá University of Northern Iowa frá árinu 2008. Lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 2000.

Tómas Brynjólfsson

2024‑

Varaformaður nefndarinnar frá ágúst 2024. Tómas lauk meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics árið 2004 og meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2003. Þá lauk hann BA-gráðu í alþjóðastjórnmálafræði, sögu og hagfræði við University of Georgia árið 2002. Tómas var skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá árinu 2018 og var settur ráðuneytisstjóri frá janúar til apríl 2024.

Þórarinn G. Pétursson

2025‑

Þórarinn er með Cand. Oecon próf í hagfræði frá Háskóla Íslands, meistarapróf í hagfræði frá Essex-háskóla í Bretlandi og doktorspróf í hagfræði frá Árósa-háskóla í Danmörku. Þórarinn hóf störf í Seðlabanka Íslands árið 1994. Aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs frá árinu 2009 og sat í peningastefnunefnd bankans á árunum 2009-2019.

Arnaldur Sölvi Kristjánsson

2025‑

Arnaldur Sölvi er lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands, með doktorsgráðu í hagfræði frá Háskólanum í Osló. Hann starfaði áður m.a. hjá Alþýðusambandi Íslands, norsku hagstofunni og á efnahagsskrifstofu í fjármálaráðuneyti Noregs.