Seðlabanki Íslands stendur fyrir stórri, alþjóðlegri ráðstefnu í Hörpu dagana 28. og 29. þessa mánaðar þar sem seðlabankastjórar, aðrir leiðtogar í efnahagsmálum og fræðimenn frá öllum heimshornum koma saman til að ræða stöðu efnahagsmála og helstu áskoranir í þeim efnum.
Ráðstefnan, Reykjavík Economic Conference, er nú haldin í þriðja sinn í samstarfi við The Center for International Macroeconomis við Northwestern-háskóla í Illinois í Bandaríkjunum og hefur því fest sig í sessi sem vettvangur fyrir hagstjórnendur og fræðimenn til að ræða áskoranir í efnahagsmálum og hagstjórn.
Meðal þátttakenda á ráðstefnunni í ár eru Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Andrew Bailey seðlabankastjóri í Bretlandi, seðlabankastjórar í Bandaríkjunum, Sanjay Malhotra, seðlabankastjóri Indlands og fleiri seðlabankastjórar ýmissa landa í Evrópu og víðar. Þá taka virtir fræðimenn og stjórnendur í háskólum austan hafs og vestan þátt í ráðstefnunni auk sérfræðinga frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
Peningastefna, olíuverð, gjaldmiðlamál og óvissa í brennidepli alþjóðlegrar umræðu
Á ráðstefnunni verður rætt um hvernig seðlabankar geta brugðist við aukinni verðbólgu í kjölfar tímabundinnar hækkunar olíuverðs. Fjallað verður um hvernig lítil, opin hagkerfi geta hagað peningastefnu og valið á milli ólíkra kosta í hagstjórn við skilyrði mikillar óvissu.
Þá verður fjallað um hlutverk gjaldmiðla í óstöðugu efnahagsumhverfi en þeir geta hvort tveggja virkað sem vörn gegn afleiðingum efnahagsáfalla eða magnað þau. Ræddir verða kostir og gallar aðildar að stærra myntsvæði, m.a. í samhengi við traust á stefnu stjórnvalda og sjálfstæði í peningamálum. Einnig verður rætt um vaxtamun á milli gjaldmiðlasvæða.
Loks verður fjármálastöðugleiki til umræðu. Auknar reglur gilda um fjármálastarfsemi og ný þjóðhagsvarúðartæki hafa verið tekin í notkun á undanförnum árum. Að einhverju leyti getur það orðið til þess að fjármálaþjónusta utan bankakerfisins, sem reglurnar ná ekki til, verður umfangsmeiri. Tengt því er sú skoðun að víðtæk reglusetning færi áhættu í fjármálarekstri yfir á fjármálafyrirtæki utan bankakerfisins og auki þannig sveiflur á eignamörkuðum fremur en að dempa eða koma í veg fyrir þær. Í ljósi þess að markaðir eru stöðugt að aðlagast nýjum aðstæðum þurfi því að meta kosti og galla einföldunar á regluverki og afnáms reglna.
Helstu drifkraftar og áhættuþættir á fjármálamörkuðum verða til umræðu. Sérfræðingar úr alþjóðlegum fjármálastofnunum og bönkum fjalla um áhrif óvæntra breytinga á mörkuðum og í peningastefnu á eignamarkaði og hvernig aukin spenna í heimsmálum hefur mótað markaðsaðstæður og haft áhrif á viðskiptastefnu þjóða.
Þátttaka á ráðstefnunni verður aðeins samkvæmt boði og dagskrárliðir ráðstefnunnar verða að hluta samkvæmt svokallaðri Chatham House-reglu, þ.e. pallborðsumræður og þau erindi sem ekki verður streymt. Í reglunni felst að þátttakendum mega nýta þær upplýsingar sem fram koma, en mega hvorki greina frá því hver sagði hvað né hvaða stofnun eða aðila viðkomandi tengist. Alþjóðlegir fjölmiðlar á borð við Bloomberg og Financial Times munu jafnframt gera ráðstefnunni skil.
Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast hér: Reykjavík Economic Conference
Eftirfarandi dagskrárliðum (á ensku) verður streymt hér neðar.
28. maí
12:55-13:30 Keynote address (livestreamed)
President John C. Williams, Federal Reserve Bank of New York
Q&A moderated by Claire Jones, Financial Times
14:15-14:40 Keynote address (livestreamed)
President Alberto Musalem, Federal Reserve Bank of St. Louis
Q&A moderated by Claire Jones, Financial Times
29. maí
09:10-09:35 Keynote address (livestreamed)
Governor Andrew Bailey, Bank of England
Q&A moderated by Stephanie Flanders, Bloomberg
10:25-10:50 Keynote address (livestreamed)
President Jeffrey Schmid, Federal Reserve Bank of Kansas City
Q&A moderated by Stephanie Flanders, Bloomberg
16:10-16:50 Keynote address and Q&A: The world seen from Iceland. (livestreamed)
Governor Ásgeir Jónsson, Central Bank of Iceland
Followed by fireside chat with Jón Steinsson, moderated by Claire Jones.