Fara beint í Meginmál

Breytingar á reglum um hámark veðsetningarhlutfalls og greiðslubyrðar fasteignalána 31. október 2025

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákvað á aukafundi sínum í dag, 31. október 2025, að gera breytingar á reglum nr. 216/2024 um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda og reglum nr. 217/2024 um hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda.

Nokkur óvissa hefur skapast á íbúðalánamarkaði í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 55/2024 frá 14. október sl. og viðbragða lánveitenda við honum. Í því ljósi og til að styðja við virkni íbúðalánamarkaðar ákvað fjármálastöðugleikanefnd að gera breytingar á lánþegaskilyrðum. Nánar tiltekið ákvað nefndin að undanþáguheimild lánveitenda, til að veita lán umfram hámark greiðslubyrðar fasteignalána, skyldi hækkuð úr 5% í 10% af heildarfjárhæð veittra fasteignalána undangengins ársfjórðungs. Þá ákvað nefndin að hækka hámark veðsetningarhlutfalls við kaup á fyrstu fasteign úr 85% í 90%.

Fyrrnefndum reglum verður breytt til samræmis og þær endurútgefnar undir sömu heitum. Sjá reglur á vef stjórnartíðinda: