Þeim einum er heimilt að veita greiðsluþjónustu sem hafa til þess leyfi samkvæmt lögum nr. 114/2021, um greiðsluþjónustu.
Samkvæmt 23. tölul. 3. gr. laganna er einungis eftirfarandi aðilum heimilt að veita greiðsluþjónustu:
- Fjármálafyrirtækjum með heimild til móttöku innlána eða annarra endurgreiðanlegra fjármuna frá almenningi og veitingu útlána
- Rafeyrisfyrirtækjum
- Póstgíróstofnunum sem hafa rétt samkvæmt landslögum til að veita greiðsluþjónustu
- Greiðslustofnunum
- Seðlabanka Evrópu og seðlabönkum ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu
- Stjórnvöldum ef greiðsluþjónusta tengist ekki hlutverki þeirra
- Greiðslustofnunum með takmarkað starfsleyfi
- Tilteknum lögaðilum eða einstaklingum sem fengið hafa undanþágu samkvæmt 35. gr. laganna
Umsókn og afgreiðsla starfsleyfis greiðslustofnana
Umsókn um leyfi til að starfa sem greiðslustofnun skal vera skrifleg og skulu henni fylgja tilteknar upplýsingar. Seðlabankinn hefur útbúið yfirlit yfir þær upplýsingar sem stofnunin fer fram á að fylgi umsókn.
Seðlabankinn hefur eftirlit með greiðslustofnunum og öðrum greiðsluþjónustuveitendum samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu. Á grundvelli framangreinds hefur Seðlabankinn sett reglur nr. 88/2020, um tryggilega varðveislu fjármuna sem greiðslustofnun móttekur.
Hæfismat stjórnarmanna og framkvæmdastjóra greiðslustofnana
Samhliða afgreiðslu umsóknar um starfsleyfi greiðslustofnana metur Seðlabankinn hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra á grundvelli 11. gr. laga um greiðsluþjónustu, sbr. 52. gr. og 52. gr. a laga um fjármálafyrirtæki.
Virkur eignarhlutur
Samhliða afgreiðslu umsóknar um starfsleyfi fyrir greiðslustofnun getur Seðlabankinn þurft að leggja mat á hvort hluthafar hennar séu hæfir til að fara með virkan eignarhlut samkvæmt 5. gr. laga um greiðsluþjónustu, sbr. VI. kafla laga um fjármálafyrirtæki.