Um rekstur og starfsemi sérhæfðra sjóða fer samkvæmt lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Aðilar sem reka sérhæfða sjóði skulu annaðhvort hafa starfsleyfi til þess eða vera skráðir hjá Seðlabankanum.
Hvað er sérhæfður sjóður?
Sjóður, þ.m.t. sjóðsdeildir, sem veitir viðtöku fé frá fjárfestum til sameiginlegrar fjárfestingar samkvæmt fyrir fram kunngerðri fjárfestingarstefnu með ávinning fjárfesta að markmiði og hefur ekki starfsleyfi sem verðbréfasjóður samkvæmt lögum nr. 116/2021, um verðbréfasjóði, sbr. 29. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Starfsleyfi rekstraraðila
Rekstraraðili, sem rekur einn eða fleiri sérhæfða sjóði, skal afla starfsleyfis nemi heildareignir í rekstri hans meira en jafnvirði:
- 100 milljóna evra (EUR) í íslenskum krónum, miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni, eða
- 500 milljóna evra (EUR) í íslenskum krónum, miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni, ef rekstraraðilinn rekur einungis sérhæfða sjóði sem ekki eru vogaðir og þar sem ekki er unnt að innleysa hlutdeildarskírteini eða hluti fyrstu fimm árin frá dagsetningu upphaflegrar fjárfestingar í sérhverjum sérhæfðum sjóði, sbr. 6. gr. laganna.
Rekstraraðila er einnig heimilt til viðbótar, að fenginni sérstakri heimild, að sinna eftirfarandi verkefnum og skal við framkvæmd þeirra fara að lögum nr. 115/2021, um markaði fyrir fjármálagerninga:
- Eignastýring.
- Fjárfestingaráðgjöf.
- Varsla og umsýsla hlutdeildarskírteina eða hluta sjóða um sameiginlega fjárfestingu.
- Móttaka og miðlun fyrirmæla varðandi fjármálagerninga.
Umsókn og afgreiðsla starfsleyfis rekstraraðila
Umsókn um leyfi til að starfa sem rekstraraðili skal vera skrifleg og skulu henni fylgja tilteknar upplýsingar, sbr. II. kafla laganna. Seðlabankinn hefur útbúið yfirlit yfir þær upplýsingar sem hann fer fram á að fylgi umsókn.
Seðlabankinn hefur eftirlit með starfsemi rekstraraðila og sérhæfðra sjóða, sbr. XI. kafla laganna.
Hæfismat stjórnarmanna og framkvæmdastjóra rekstrarfélags
Samhliða afgreiðslu umsóknar um starfsleyfi rekstraraðila metur Seðlabankinn hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra á grundvelli 14. gr. laganna, sbr. 52. gr. og 52. gr. a laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Virkur eignarhlutur
Samhliða afgreiðslu umsóknar um starfsleyfi fyrir rekstrarfélag getur Seðlabankinn þurft að leggja mat á hvort hluthafar þess séu hæfir til að fara með virkan eignarhlut samkvæmt 16. gr. laganna, sbr. VI. kafla laga um fjármálafyrirtæki.
Umsókn og afgreiðsla skráningar rekstraraðila
Umsókn um skráningu til að starfa sem rekstraraðili skal vera skrifleg og skulu henni fylgja tilteknar upplýsingar. Seðlabankinn hefur útbúið yfirlit yfir þær upplýsingar sem hann fer fram á að fylgi umsókn.