Fara beint í Meginmál

Rekstur og markaðsetning verðbréfasjóða er aðeins heimil rekstrarfélögum sem fengið hafa starfsleyfi Seðlabankans, sbr. lög nr. 116/2021, um verðbréfasjóði.

Hvað er verðbréfasjóður

Sjóður um sameiginlega fjárfestingu sem hefur það eitt að markmiði að veita viðtöku fé frá almenningi til sameiginlegrar fjárfestingar í fjármálagerningum og öðrum seljanlegum eignum á grundvelli áhættudreifingar samkvæmt fyrir fram kunngerðri fjárfestingarstefnu, og hlutdeildarskírteini í honum eru keypt eða innleyst að beiðni hlutdeildarskírteinishafa, beint eða óbeint, af eignum sjóðsins, sbr. 26. tölul. 1. mgr. 3. gr. laganna.

Umsókn og afgreiðsla starfsleyfis rekstrarfélags

Umsókn um leyfi til að starfa sem rekstrarfélag verðbréfasjóða skal vera skrifleg og skulu henni fylgja tilteknar upplýsingar, sbr. II. kafla laganna.

Seðlabankinn hefur eftirlit með starfsemi rekstrarfélaga og verðbréfasjóða, sbr. XIII. kafla laganna

Hæfismat stjórnarmanna og framkvæmdastjóra rekstrarfélags

Samhliða afgreiðslu umsóknar um starfsleyfi rekstrarfélaga metur Seðlabankinn hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra á grundvelli 11. gr. laganna, sbr. 52. gr. og 52. gr. a laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

Mat á hæfi

Virkur eignarhlutur

Samhliða afgreiðslu umsóknar um starfsleyfi fyrir rekstrarfélag getur Seðlabankinn þurft að leggja mat á hvort hluthafar þess séu hæfir til að fara með virkan eignarhlut samkvæmt 13. gr. laganna, sbr. VI. kafla laga um fjármálafyrirtæki.

Virkur eignarhlutur