Fara beint í Meginmál

Gögn yfir útboð verðbréfa eru birt mánaðarlega eftir fyrirfram ákveðinni birtingaráætlun kl. 09:00 á birtingardegi.

Gögnin miðast við stöðu í lok mánaðar og eru aðgengileg á mánaðarlegri tíðni frá janúar 1994.

Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is

Ítarleg gögn fyrir útboð verðbréfa  má nálgast á tímaraðaformi í Gagnabankanum

Útboð markaðsskuldabréfa og víxla

Gögnum um útboð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) er safnað í því skyni að fylgjast með þróun á útboðum verðbréfa (frumsölu, þ.e. nýjum útgáfum af skuldabréfum) hér á landi, flokkuð á útgefendur, formum og líftíma ásamt ávöxtunarkröfu við sölu þeirra. Seðlabankinn nýtir gögnin jafnframt í starfsemi sinni.

Lagagrundvöllur

Gagnasöfnunin fer fram á grundvelli 32. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Í samræmi við 41. gr. laganna hefur Seðlabankinn heimild að eiga upplýsingaskipti við opinbera aðila um atriði sem lög þessi taka til þegar upplýsingaskiptin eru í samræmi við lögmælt hlutverk Seðlabankans eða móttakanda.

Útboð verðbréfa

Gögn eru unnin eftir upplýsingum útgefenda eða milligönguaðila í útboði. Skráð verðbréf eru birt í Kauphöll (NASDAQ OMX Iceland). Útboðin eru flokkuð í opin og lokuð útboð við sölu og samtala þeirra reiknuð í hverjum mánuði.

Upplýsingar um útboð verðbréfa eru fengnar frá Lánamálum ríkisins, Íbúðalánasjóði (nú hættur starfsemi), bönkum, verðbréfafyrirtækjum og öðrum milligönguaðilum um útboð skuldabréfa.

Endurskoðun gagna

Nýjustu tölur eru ávallt bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum berist ný gögn frá skilaaðilum.

Leiðbeiningar fyrir skilaaðila er að finna í gagnaskilakerfi Seðlabanka Íslands.

Útboð

Verðbréf (skuldabréfa og víxlar) sem boðin eru til kaups á verðbréfamarkaði. Útboð verðbréfa geta verið opin (almenn) eða lokuð.

Opið útboð
Opin útboð eru almenn útboð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) sem boðin eru almenningi til kaups með almennri og opinberra auglýsingu með útboðslýsingum eða kynningu með öðrum hætti sem jafna má til opinberrar auglýsingar með útboðslýsingum.

Lokað útboð
Aðeins skilgreindur hópur geta tekið þátt í lokuðu útboði t.d. fjármálafyrirtæki (bankar, lífeyrissjóðir og önnur fjármálafyrirtæki) og fagfjárfestar. Lokuð útboð þarf ekki að auglýsa.

Frumsala
Sala á nýju (nýútgefnu) verðbréfi.

Innlendur aðili / Erlendur aðili

Innlendur aðili merkir sérhvern einstakling sem hefur lögheimili á Íslandi og lögaðila sem skráður er til heimilis á Íslandi, án tillits til ríkisfangs. Undanþegnir búsetuskilyrðum eru námsmenn og starfsmenn sendiráða. Þannig teljast íslenskir námsmenn og skyldulið þeirra sem búa erlendis vera innlendir aðilar og erlendir sendiráðsstarfsmenn teljast til erlendra aðila. Erlendur aðili merkir alla aðra aðila en innlenda.

Viðburðir framundan

Sjá allt
útboð verðbréfa
17. september
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Ágúst 2025
útboð verðbréfa
17. október
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - September 2025
Hagtölur
TitillTíðniNýjastTímabilNæstFlokkurGagnabanki
GjaldeyrisforðiMánaðarleg18. ágústJúlí 202515. septemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Útboð verðbréfaMánaðarleg18. ágústJúlí 202517. septemberMarkaðir
TryggingafélögMánaðarleg18. ágústJúní 202517. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GreiðslumiðlunMánaðarleg15. ágústJúlí 202517. septemberMarkaðir
Efnahagur Seðlabanka ÍslandsMánaðarleg8. ágústJúlí 20255. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GjaldeyrismarkaðurMánaðarleg8. ágústJúlí 20259. septemberMarkaðir
KrónumarkaðurMánaðarleg8. ágústJúlí 20259. septemberMarkaðir
RaungengiMánaðarleg8. ágústJúlí 20259. septemberMarkaðir
LífeyrissjóðirMánaðarleg7. ágústJúní 20254. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Staða markaðsverðbréfaMánaðarleg31. júlíJúní 202529. ágústMarkaðir
VerðbréfafjárfestingMánaðarleg29. júlíJúní 202529. ágústGreiðslujöfnuður við útlönd
Lánasjóðir ríkisinsMánaðarleg28. júlíJúní 202527. ágústEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Önnur fjármálafyrirtækiMánaðarleg28. júlíJúní 202527. ágústEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðirMánaðarleg28. júlíJúní 202527. ágústEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
InnlánsstofnanirMánaðarleg25. júlíJúní 202525. ágústEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Fjármálareikningar fjármálafyrirtækjaÁrsfjórðungsleg6. júní1. ársfjórðungur 20258. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Erlendar skuldirÁrsfjórðungsleg5. júní1. ársfj. 20254. septemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlend staða þjóðarbúsinsÁrsfjórðungsleg5. júní1. ársfj. 20254. septemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Greiðslujöfnuður við útlöndÁrsfjórðungsleg5. júní1. ársfj. 20254. septemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Bein fjárfestingÁrleg20. mars2023 uppfærsla19. septemberGreiðslujöfnuður við útlönd