Fara beint í Meginmál

Gögn um veltu greiðslukorta og fjölda færslna innlendra korta innanlands sem erlendis og erlendra korta hér á landi eru birt mánaðarlega eftir fyrirfram ákveðinni birtingaráætlun kl. 09:00 á birtingardegi.

Gögnin eru aðgengileg á mánaðarlegri tíðni frá janúar 1998. Frá ársbyrjun 2013 er miðað við almanaksmánuð en áður við innheimtutímabil.

Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is

Hér má nálgast tímaraðaskjal fyrir greiðslumiðlun

Greiðslumiðlun

Gögnum um greiðslumiðlun er safnað í því skyni að fylgjast með veltu greiðslukorta og fjölda færslna og birta samantekt á upplýsingum frá þeim. Seðlabankinn nýtir gögnin jafnframt í starfsemi sinni.

Lagagrundvöllur

Gagnasöfnunin fer fram á grundvelli 32. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Í samræmi við 41. gr. laganna hefur Seðlabankinn heimild að eiga upplýsingaskipti við opinbera aðila um atriði sem lög þessi taka til þegar upplýsingaskiptin eru í samræmi við lögmælt hlutverk Seðlabankans eða móttakanda.

Greiðslumiðlun

Fyrirtæki í greiðslumiðlun auðvelda greiðslur frá korthöfum til söluaðila með greiðslumiðlunartækni, þ.m.t. kort og posar. Gögn um greiðslumiðlun endurspegla veltu og færslufjölda innlendra korta innanlands, auk veltu og færslufjölda erlendra korta innanlands.

Greiðslumiðlunarmarkaði má í grófum dráttum skipta í tvennt:

  • Kortaútgefendur: Gefa út kort til einstaklinga og fyrirtækja til að framkvæma greiðslur fyrir vörur og þjónustu. Auk þess er að hægt að taka út reiðufé með kortafærslum.  Athugið að hér er um að ræða innlendar fjármálastofnanir en ekki alþjóðleg kortakerfi á borð við Mastercard eða VISA.
  • Færsluhirðar: Útvega söluaðilum posa og annars háttar tæknilausnir til að taka á móti og vinna úr greiðslum frá korthöfum.

Auk þess má nefna að notkun á annars háttar greiðslumiðlunartækni hefur færst í aukana, t.a.m. er hægt að greiða fyrir vörur og þjónustu með beinum millifærslum. Eins má nefna reikning-í-reikning greiðslur og kortalausa færsluhirðingu á borð við PayPal.  Notkun reiðufés tíðkast enn. Gagnasöfnun Seðlabankans leitast við að ná utan um umfang ólíkra greiðsluleiða.

Endurskoðun gagna

Nýjustu tölur eru ávallt bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum berist ný gögn frá skilaaðilum.

Greiðslumiðlun

Fyrirtæki í greiðslumiðlun auðvelda greiðslur frá korthöfum til söluaðila með greiðslumiðlunartækni, þ.m.t. kort og posar. Gögn um greiðslumiðlun endurspegla veltu og færslufjölda innlendra korta innanlands, auk veltu og færslufjölda erlendra korta innanlands.

Kortaútgefendur
Gefa út kort til einstaklinga og fyrirtækja til að framkvæma greiðslur fyrir vörur og þjónustu. Auk þess er að hægt að taka út reiðufé með kortafærslum. Athugið að hér er um að ræða innlendar fjármálastofnanir en ekki alþjóðleg kortakerfi á borð við Mastercard eða VISA.

Færsluhirðar
Útvega söluaðilum posa og annars háttar tæknilausnir til að taka á móti og vinna úr greiðslum frá korthöfum.

Debetkort
Rafrænt kort sem millifærir beint á bankareikning eiganda kortsins

Kreditkort
Rafrænt kort þar sem greiðslum er safnað saman hjá færsluhirðum til innheimtu mánaðarlega frá eiganda kortsins.

Virk greiðslukort
Kort sem notuð hafa verið í viðkomandi mánuði.

Útgefin greiðslukort
Öll útgefin, gildandi kort, óháð því hvort þau hafa verið notuð.

Innlendur aðili / Erlendur aðili

Innlendur aðili merkir sérhvern einstakling sem hefur lögheimili á Íslandi og lögaðila sem skráður er til heimilis á Íslandi, án tillits til ríkisfangs. Undanþegnir búsetuskilyrðum eru námsmenn og starfsmenn sendiráða. Þannig teljast íslenskir námsmenn og skyldulið þeirra sem búa erlendis vera innlendir aðilar og erlendir sendiráðsstarfsmenn teljast til erlendra aðila. Erlendur aðili merkir alla aðra aðila en innlenda.

Viðburðir framundan

Sjá allt
greiðslumiðlun
17. október
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - September 2025
greiðslumiðlun
18. nóvember
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Október 2025
Hagtölur
TitillTíðniNýjastTímabilNæstFlokkurGagnabanki
GjaldeyrismarkaðurMánaðarleg8. októberSeptember 20257. nóvemberMarkaðir
KrónumarkaðurMánaðarleg8. októberSeptember 20257. nóvemberMarkaðir
RaungengiMánaðarleg8. októberSeptember 20257. nóvemberMarkaðir
Efnahagur Seðlabanka ÍslandsMánaðarleg7. októberSeptember 20257. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
LífeyrissjóðirMánaðarleg6. októberÁgúst 20254. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
VerðbréfafjárfestingMánaðarleg30. septemberÁgúst 202529. októberGreiðslujöfnuður við útlönd
Staða markaðsverðbréfaMánaðarleg30. septemberÁgúst 202531. októberMarkaðir
Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðirMánaðarleg29. septemberÁgúst 202527. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Lánasjóðir ríkisinsMánaðarleg29. septemberÁgúst 202528. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Önnur fjármálafyrirtækiMánaðarleg29. septemberÁgúst 202528. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
InnlánsstofnanirMánaðarleg25. septemberÁgúst 202524. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Bein fjárfestingÁrleg19. september202420. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
GreiðslumiðlunMánaðarleg17. septemberÁgúst 202517. októberMarkaðir
TryggingafélögMánaðarleg17. septemberJúlí 202517. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Útboð verðbréfaMánaðarleg17. septemberÁgúst 202517. októberMarkaðir
GjaldeyrisforðiMánaðarleg15. septemberÁgúst 202515. októberGreiðslujöfnuður við útlönd
Fjármálareikningar fjármálafyrirtækjaÁrsfjórðungsleg8. september2. ársfjórðungur 20258. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Erlendar skuldirÁrsfjórðungsleg4. september2. ársfj. 20254. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlend staða þjóðarbúsinsÁrsfjórðungsleg4. september2. ársfj. 20254. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Greiðslujöfnuður við útlöndÁrsfjórðungsleg4. september2. ársfj. 20254. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd